Um: myndgæði
Myndirnar í þessu myndasafni birtast allar í lítt prenthæfri upplausn til að
vefurinn geti rúmað sem flestar myndir og ekki taki of langan tíma að fletta.
Hér að neðan má sjá skýr dæmi um gæði netmyndanna annarsvegar og
gæði frummyndanna hinsvegar.

Ef óskað er eftir myndi í bestu gæðum filmunnar þarf að panta hana frá
ljósmyndaranum ©, enda eru allar myndir á vefnum háðar skilyrðum
höfundaréttarlaga © um alla notkun.

Netmynd héðan
Stækkað úr netmyndinni
Sama úr frummynd
 

Vefur þessi er stofnaður af Hauki Helgasyni fyrverandi sjómanni, kennara og skólastjóra. Fyrst og fremst til ánægju, gleði og heiðurs öllu því fólki, börnum og fullorðnum sem Haukur kynntist persónulega og fyrir tilstuðlan helsta áhugamáls hans ljósmyndunarinnar. Í dag á hann mikið safn af vel varðveittum meira en 40 ára gömlum ljósmyndafilmum. Myndirnar eru þó að sjálfsögðu misjafnar að gæðum. Á netmyndunum er ekki hægt að dæma um skerpu hvorki ef myndir virðast óskýrar á netmynd þá geta þær meira en líklega verið snarp skýrar beint af filmunni og eins geta myndir sem virðst skarpar á netinu einungis verið miðlungs skarpar í reynd.
Beinlínis óskýrar myndir verða ekki settar hér upp nema þær sem slíkar hafi sérstakt listrænt eða sögulegt gildi.

Að kaupa mynd:
Til að standa straum að kostnaði við þetta framtak sem er verulegur fyrir utan gríðalega vinnu sem hefur verið lögð í að skanna myndir og setja upp vefinn, þá býðst þeim sem vilja að kaupa myndir í fullum gæðum á pappír til einkanota eða á stafrænu formi fyrir prentmiðla. Til þess þarf að senda pöntun með tölvupósti á netfangið hh@myndverk.is þar sem fram kemur númer myndar æskileg stærð (og upplausn ef við á) og til hvaða nota myndin er ætluð, þ.e. til einkanota eða opinberrrar birtingar/prentunar.